Mánaðarpóstur Landssamtaka lífeyrissjóða í desember 2016
Skoða í vefskoðara
Fréttir
Séreignarsparnaður
Lífeyrissjóðir eru góður kostur fyrir húsnæðissparnað. Lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð gera einstaklingum kleift að ráðstafa séreignarsparnaði til að safna fyrir kaupum á íbúð og/eða greiða inn á höfuðstól láns sem tekið var vegna kaupanna.
Sjá nánar á www.ll.is
Af vettvangi
Sameining lífeyrissjóða - Birta lífeyrissjóður
 Birta lífeyrissjóður tók formlega til starfa 1. desember. Birta lífeyrissjóður varð til við sam­ein­ingu Sam­einaða líf­eyr­is­sjóðsins og Stafa líf­eyr­is­sjóðs. Vefslóð Birtu lífeyrissjóðs er www.birta.is. Við óskum Birtu innilega til hamingju.

Ný heimasíða LL
Ný heimasíða LL er nú í burðarliðnum. Gert er ráð fyrir að síðan fari í loftið um miðjan janúar. Það er vefsíðufyrirtækið Stefna, sem er með höfuðstöðvar á Akureyri, sem hefur veg og vanda af vefsíðugerðinni. Stemningin í  sjónvarpsauglýsingu LL, lífeyrissjóðurinn þinn, mun endurspeglast í nýrri vefsíðu LL: www.lifeyrismal.is

 
Á döfinni
Breytingar á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða kynntar
Fimmtudaginn 1. desember stóð eigna- og áhættustýringarnefnd LL fyrir kynningarfundi á Grand hóteli þar sem helstu breytingar á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða í nýsamþykktum lögum nr. 113/2016 voru kynntar.

Breytingar á lögum um almannatryggingar kynntar
LL í samstarfi við Tryggingastofnun ríkisins boða til kynningarfundar um breytingar á lögum um almannatryggingar miðvikudaginn 7. desember kl. 8:30 – 10:00. Fundurinn er ætlaður stjórnarmönnum lífeyrissjóða og starfsmönnum, einkum þeim sem koma að afgreiðslu lífeyris. Þátttaka tilkynnist á radstefna@ll.is.
© 2016 Landssamtök lífeyrissjóða, Allur réttur áskilinn


Hætta í áskrift 

Email Marketing Powered by Mailchimp